MARGIT FREDRIKKE TVEITEN tók við embætti sendiherra Noregs á Íslandi hinn 27. ágúst 2007. Áður en hún kom til Íslands var hún stjórnandi alþjóðasviðs norska Stórþingsins undanfarin þrjú ár.
Margit F. Tveiten er cand. jur. frá Oslóarháskóla með framhaldsnám þar og við Europa College I Brugge með sérstaka áherzlu á þjóðarétt og Evrópurétt. Auk þess er hún cand. mag. frá háskólunum í Osló og Bergen í hugmyndasagnfræði, ítölsku og þýzku.
Hún hóf störf hjá norsku utanríkisþjónustunni árið 1988. Í ráðuneytinu starfaði hún í lögfræðismálefnadeild og á viðskiptaskrifstofu þess, árin 1999-2001 sem aðstoðarforstjóri. Í starfi hennar hjá ráðuneytinu hafa þjóðréttarmálefni og málefni Evrópubandalagsins verið meðal helztu viðfangsefna hennar.
Árin 1990-1992 starfaði hún sem sendiráðsritari við sendiráð Noregs í Reykjavík og árin 1992-1994 var hún aðstoðarbankastjóri við EBRD, Evrópska þróunar- og uppbyggingarbankann í London. Árin 2001-2004 bjó hún í Suður-Afríku, en eiginmaður hennar var sendiherra Noregs þar.
Hún hefur ritað og birt greinar í lögfræðitímaritum um Evrópska efnahagssvæðið og Evrópubandalagið, mannréttindi og réttarfarsmálefni í Austur- og Mið-Evrópu.
Margit F. Tveiten er fædd árið 1961 og er gift Jon Dagfinnson Bech. Þau eiga tvö börn, 11 og 13 ára.