A | A | A
Toril Berge og Dag Wernø Holter á Austurvelli. 
Foto: Sendiráðið/PRL.Toril Berge og Dag Wernø Holter á Austurvelli. Foto: Sendiráðið/PRL

Oslóartréð 2011

Ljósin á Oslóartrénu sem er gjöf Oslóarbúa til Reykjavíkinga voru tendruð við hátíðlega athöfn á Austurvelli í Reykjavík sunnudaginn 27. nóvember - fyrsta sunnudag í aðventu en í ár eru 60 ár síðan Oslóarbúar gáfu Reykvíkingum fyrst jólatré. Sendiherra Noregs Dag Wernø Holter flutti stutt ávarp, Toril Berge sem er formaður Oslo Venstre og formaður Venstre-flokksins í borgarstjórn Oslóar afhenti tréð fyrir hönd Oslóarbúa og borgarstjóri Jón Gnarr veitti trénu móttöku fyrir hönd Reykvíkinga. Norsk-íslenska og 8 ára gamla Sara Lilja Ingólfsdóttir Haug tendraði ljósin á trénu. Norski trompetleikarinn Gunnar Halle tók líka þátt í athöfninni ásamt Dómkirkjukórnum.

Oslóartréð á Austurvelli. 
Foto: Sendiráðið/PRL.Oslóartréð á Austurvelli. Foto: Sendiráðið/PRL

Oslóartréð í ár var fellt við Finnerud í Nordmarka, Osló, föstudaginn 11. nóvember og flutt til Íslands með skipi Eimskipafélags Íslands.  


Del på nettet   |   print