Miðvikudaginn 26. maí 2010: Norskt bókmenntakvöld í Norræna húsinu á vegum sendikennarans í norsku við Háskóla Íslands Tiril Myklebost, Norræna hússins og Norska sendiráðsins í Reykjavík.
Frá Noregi kom rithöfundurinn Karl Ove Knausgård en hann var tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár fyrir skáldsöguna sína Min kamp 1.
Auk Knausgårds tóku Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur og Bjarni Bjarnason rithöfundur þátt í dagskránni.
Karl Ove Knausgård og Tiril Myklebost við Norræna Húsið. Foto: Norska sendiráðið