Dagskrá Norræna félagsins á Óðinstorgi á menningarnótt var með norsku þema, og norskir kórar, einleikarar og popparar komu fram. Gestir og gangandi tóku þátt í maraþonprjóni á norskum trefli og skoðuðu textíllistaverk listakonunnar Heidi Strand.
Setning hátíðar var kl. 14.00 en þá flytti ræðu Þorvaldur S. Þorvaldsson varaformaður Norræna félagsins og Silje Arnekleiv en hún er nýtekin við sem sendiráðsritari Norska sendiráðsins í Reykjavík.
Fjórir norskir kórar sungu, Rósa Jóhannesdóttir og Jon Kjell Seljeseth spiluðu á harðangursfiðlu og rafhljóðfæri og norska söngkonan Marte Heggelund söng.
Kl. 15.00 - 16.00 stóð Listasafn Íslands fyrir Listarölt um Þingholtin í fylgd Péturs Ármannssonar arkitekts. Sögufræg hús sem eiga uppruna að rekja til Noregs voru skoðuð í upphafi göngunnar sem lauk með leiðsögn Halldórs B. Runólfssonar safnstjóra um sýningu á grafíkverkum Edvards Munchs í Listasafni Íslands á Fríkirkjuvegi 7.
Marte Heggelund og Jørgen Rief. Foto: Sendiráðið
Pétur Ármannsson á Listarölt. Foto: Sendiráðinu