Jon Fosse
Jon Fosse: Eg er vinden sýnt í Þjóðleikhúskjallaranun
Leikhópurinn Sómi þjóðar sýnir nú verkið Ég er vindurinn (Eg er vinden) eftir norska rithöfundinn Jon Fosse í Þjóðleikhúskjallaranum. Leikarar eru Hannes Óli Ágústsson og Hilmir Jensson en leikstjórn er í höndum Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur.
Verkið fjallar um tvo menn sem staddir eru úti á sjó í bát annars þeirra og ræða þeir þar lífið og tilveruna en bátseigandinn virðist vera orðinn leiður á lífinu. Ég er vindurinn er frá árinu 2007.
Verkið er sýnt laugardaga og sunnudaga kl. 19.30. Nánari upplýsingar á www.leikhusid.is og www.midi.is