Birkitrjám plantað. Siri Marie Seim Sønstelie, Erik Sønstelie og Helgi Gíslason. Foto: Sendiráðið/PRL
Minningarlundur um Utøy á Íslandi
Fyrstu birkitrjánum í minningarlundi um fórnarlömbin á Utøy og í miðborg Oslóar 22. júlí 2011 var plantað miðvikudaginn 13. júní þegar feðginin Siri Marie Seim Sønstelie og Erik H. Sønstelie komu til Íslands í tengslum við útgáfu bókar þeirra "Ég er á lífi, pabbi" á íslensku.
Minningarlundurinn verður staðsettur í jaðri friðlandsins í Vatnsmýrinni í nánd við Norræna húsið og Háskóla Íslands en Norræna félagið og Þorvaldur S. Þorvaldsson áttu frumkvæði að gerð hans og hafa fengið Skógræktarfélag Reykjavíkur, Norræna húsið og Háskóla Íslands til samstarfs um þetta verkefni. Gróðursett verða átta reynitré sem tákna Norðurlöndin fimm ásamt Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi) og 69 + 8 birkitré sem tákna hvern þann sem dó 22. júlí. Til stendur að vígja lundinn á menningarnótt í ágúst nk.
Að lokinni athöfn var haldið í Norræna húsið þar sem fram fór kynning á bók þeirra feðginna sem gefin er út af forlaginu Draumsýn en Siri Marie barðist fyrir lífi sínu á Utøya þann 22. júlí 2011 á meðan pabbinn reyndi að ná sambandi við hana í síma.
Siri Marie og Erik Sønstelie í Norræna húsinu. Foto: Sendiráðið/PRL