A | A | A
Dag Wernö Holter og Þórdís Úlfarsdóttir. 
Foto: Sendiráðið/PRL.Dag Wernö Holter og Þórdís Úlfarsdóttir. Foto: Sendiráðið/PRL

ISLEX, ný íslensk - skandinavísk veforðabók

Miðvikudaginn 16. nóvember á degi íslenskrar tungu var opnuð ný íslensk - skandinavísk veforðabók við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu en það var sendiherra Noregs Dag Wernø Holter sem opnaði íslensk-norsku veforðabókina með því að ýta á "bokmål"- og "nynorsk"-takkann. Þórdís Úlfarsdóttir aðalritstjóri veforðabókar aðstoðaði.

Veforðabókin er aðgengileg ókeypis á slóðinni http://www.islex.hi.is/

ISLEX er fyrsta rafræna orðabókin sem tengir samen mörg norræn tungumál en hún er samstarfsverkefni fjögurra norrænna stofnana, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Institutionen för svenska språket, Det Danske Sprog- og Litteraturselskab og Institutt for lingvistiske, litterære og estetiske studier við Háskólann í Björgvin. Nánar um verkefnið á slóðinni http://www.islex.hi.is/islex?um=1

 


Del på nettet   |   print