Fimmtudaginn 15. október mun Hljómsveit Hafdísar með rafgítarleikaranum og tónskáldinu Hafdísi Bjarnadóttur í fararbroddi leika á Múlanum, Caffé Kulturé, Hverfisgötu. Sérstakur gestur mun leika með hljómsveitinni á tónleikunum, þ.e. norski harmonikkuleikarinn Camilla Barratt-Due, beint frá Berlín í boði norska sendiráðsins á Íslandi. Einnig mun Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona syngja tvö lög með hljómsveitinni, og er það í fyrsta skipti sem söngur heyrist í Hljómsveit Hafdísar.
Laugardaginn 17. október mun Camilla spila á tónleikum á tónlistarhátíðinni Sláturtíð sem samtökun S.L.Á.T.U.R. halda 15. – 17. október. Tónleikarnir sem Camilla spilar á eru í Fríkirkjunni þar sem hún leikur verkið Clam eftir Hafdísi Bjarnadóttur. Verkið er fyrir harmonikku, rafgítar, altflautu, 5 rangspil (rafmagnslangspil) og tölvu.
Camilla Barratt-Due hefur leikið á harmonikku frá sjö ára aldri. Hún hefur lært harmonikkuleik hjá nokkrum af virtustu klassísku harmonikkuleikurum heims, þ.á.m. Frode Haltli, Geir Draugsvoll og James Crabb. Hún lauk BA námi í klassískum harmonikkuleik frá konunglega danska tónlistarháskólanum vorið 2009. Einnig leikur Camilla töluvert af impróviseraðri tónlist og notar oft eigin rödd í bland við harmonikkuna. Camilla hefur mjög sérstæðan stíl þar sem hún blandar saman sérstæðri rödd sinni og harmonikkunni í frjálsum spuna í bland við fyrirfram samið efni.