A | A | A

Að flytja gæludýr til Noregs

Leyfilegt er að flytja flestar tegundir gæludýra frá Íslandi til Noregs. Á vefsíðu Mattilsynet (Statens tilsyn for planter, fisk, dyr og næringsmidler) er að finna upplýsingar á norsku og ensku um reglugerðir vegna mismunandi dýrategunda. Þar er einnig að finna þau eyðublöð sem fylla þarf út.

Þegar hundar og kettir eru fluttir inn er krafist vottorðs frá dýralækni ásamt gögnum um að skyldubólusetningar hafi verið framkvæmdar. Kettir og hundar verða einnig að hafa læsilega auðkenningu (húðflúr eða örflögu). ATH! Nýjar reglur m.a. um bólusetningu v/hundaæðis frá 1. október 2004, sjá t.d. "Tollvesenet".


Del på nettet   |   print