A | A | A

Innflutningur kjötvara til Noregs

Samkvæmt EES-samningnum gilda sömu innflutningsákvæði um innflutning til Noregs og Efnahagsbandalagssvæðisins. Ísland ásamt Svalbarða, Jan Mayen og Liechtenstein standa samt sem áður utan bókunarinnar um innflutning matvæla úr dýraríkinu, framleiðsluvara úr dýraríkinu og lifandi dýra. Af þessum sökum hljóta norsk stjórnvöld að meðhöndla innflutning á matvælum, kjöt, mjólk, egg, hunang o.s.frv. með sama hætti og innflutning frá löndum utan EES-svæðisins. Þetta á einnig við um innflutning einstaklinga til eigin neyslu. Slíkar takmarkanir gilda þó ekki um innflutning á fiski og fiskafurðum.

Einungis er heimilt að flytja til ESB-svæðisins íslenskar kjötvörur sem unnar eru í fyrirtækjum sem hafa leyfi til útflutnings á kjötvörum til ESB-landa. Samkvæmt gildandi starfslistum fyrir Ísland hafa engin fyrirtæki leyfi til útflutnings á kjötvörum. Því er ekki hægt að veita leyfi til innflutnings á slíkum vörutegundum til Noregs.

Það er ekki lengur hægt að sækja um undanþágu frá þessum reglum. Ný reglugerð um innflutning á kjötvörum til Noregs var samþykkt þann 30. desember 2002. Reglugerðina má lesa á heimasíðu Lovdata (sjá tengla).

 

 


Kilde: www.noregur.is   |   Del på nettet   |   print