Dýraveiðar
Allir sem ætla sér að leggja stund á dýraveiðar í Noregi verða að greiða skotveiðigjald, jafnvel þótt þeir dveljist aðeins um skamma hríð í Noregi. Skotveiðigjaldskort fæst hjá Skotveiðiskránni (Jegerregisteret) í Brønnøysund. Greiða verður gjaldið til að hafa leyfi til að stunda dýraveiðar en auk þess þarf að fá leyfi hjá landeiganda.
Nýir dýraveiðimenn verða að taka veiðimannapróf til að mega leggja stund á dýraveiðar. Allir þeir sem hyggjast stunda veiðar á stórum dýrum verða að gangast undir sérstakt skotveiðipróf árlega. Nánari upplýsingar fást hjá viðkomandi sveitarfélagi. Skrá yfir vefsíður sveitarfélaganna er að finna á norge.no.
Vopn
Skráningarskylda er á öllum skotvopnum, að undanteknum 4,5 kalíbera eða minni loft- og fjaðrabyssum, það er að menn þurfa heimild frá lögreglu til að kaupa eða eiga vopn. Sé leyfi veitt gefur lögreglan út skotvopnaskírteini. Yfirleitt fá aðeins félagar skotfélaga eða skotveiðifélaga þannig skírteini.
Íslenskir borgarar með íslenskt skotvopnaleyfi geta fengið tímabundið leyfi til að bera vopn í Noregi í leyfum. Gefa þarf vopn og skotvopnaskírteini upp til tolls hjá landamæralögreglu (rauða hliðið í tollinum). Sama á við ef áformað er að flytja til Noregs en þá þarf eyðublað um umsókn um skotvopnaleyfi að fylgja vopninu/búslóðinni. Þetta eyðublað fæst með því að hafa samband við lögregluna í því héraði sem þú flytur til.
Fiskveiðar
Allir sem orðnir eru 16 ára og ætla sér að stunda fiskveiðar í ferskvatni verða að greiða veiðigjald. Gjaldið má greiða með sérstökum gíróseðli sem liggur frammi á öllum pósthúsum landsins. Gjaldið er ekki hið sama fyrir laxveiðar og aðrar sportveiðar (gildir frá 1. apríl til 31. mars næsta ár). Einnig er hægt að fá keypt fjölskyldukort og vikukort.
Veiðigjaldið er forsenda þess að mega veiða en það gefur engum rétt til veiða. Eigi að veiða í ferskvatni þarf einnig að fá leyfi til þess frá landeiganda.
Yfirleitt er það ókeypis og öllum heimilt að veiða í hafi með stöng eða á handfæri.
Hafðu samband við sveitarfélagið sem þú hyggst fara til og fáðu upplýsingar um reglur um fiskveiði á því svæði. Hægt er að finna vefsíður sveitarfélaga á norge.no. Ekki eru gerðar kröfur um að fiskveiðibúnaður sé sótthreinsaður við innflutning til Noregs.