A | A | A

Halló Norðurlönd

HALLÓ NORÐURLÖND er upplýsingaþjónusta á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem ætlað er að aðstoða einstaklinga sem flytjast búferlum milli norrænna ríkja. Þjónustan veitir upplýsingar fyrir þá sem ætla að vinna, stunda nám, leita sér að vinnu eða setjast að í öðru norrænu land, t.d. Noregi. Hægt er að fá upplýsingar um sjúkratryggingar, lífeyrismál, skatta, atvinnuleysistryggingar, námsstyrki, atvinnumöguleika og fleira.

Norræna félagið sér um rekstur Halló Norðurlanda á Íslandi og þú getur haft samband við skrifstofuna í gegnum heimasíðuna http://www.hallonorden.org netfang: hallo@norden.is eða hringt í símanúmer 511 18 08.  


Del på nettet   |   print