A | A | A

Húsnæði

Húsnæðismarkaðurinn í Noregi er breytilegur frá einu sveitarfélagi til annars. Ef þú hyggst flytja til Noregs skaltu fyrst og fremst kynna þér auglýsingar um húsnæði í dagblöðum (einnig kemur til greina að setja sjálf(ur) inn auglýsingu), framboð hjá fasteignasölum, hvort sveitarfélagið sem þú hyggst flytja til ráði yfir opinberri húsnæðismiðlun og hvort atvinnuveitandinn geti aðstoðað þig við að finna húsnæði.

Húsnæðismiðlun sveitarfélaga er víða að finna en biðröðin getur verið löng. Fasteignasalar geta boðið húsnæði bæði til leigu og kaups.

Upplýsingar um húsnæði til sölu eða leigu má finna á Netinu. Hér eru nokkrar vefslóðir.


Kilde: www.noregur.is   |   Del på nettet   |   print