Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er tilgangur hans “að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna, t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíliða grundvelli.” Ekki eru veittir styrkir til þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, þ.m.t. samnorrænum, sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndum, og ekki er úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.
Í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur beri sjálfir dvalarkostnað í Noregi.
Umsóknum óskast beint til stjórnar sjóðsins og sendar til asta.ingolfsdottir@mrn.stjr.is eller Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum skal skila á eyðublaði sem er á heimasíðu ráðuneytisins.
Umsóknarfrestur er til 26. mars 2010.