A | A | A
Foto: Norske ambassade.Foto: Norske ambassade.

Framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs

Árið 1994 ákváðu norsk stjórnvöld að leggja til árlegt framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs sem Haraldur V Noregskonungur kynnti í heimsókn sinni til Íslands vegna 50-ára afmælis íslenska lýðveldisins.

Framlaginu skyldi ráðstafað í samráði íslenska mennta- og menningarmálaráðuneytisins og norska menningarmálaráðuneytisins (2012: Menningarráðs Noregs). Hið árlega framlag er nú um 1.400.000 norskar krónur.

Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi Noregs og Íslands og geta Norðmenn og Íslendingar sótt um framlag til verkefna sem mikilvæg teljast í báðum löndum og vera líkleg til að leiða til varanlegra tengsla milli fagmanna, listamanna og fræðimanna. Verkefnin skulu endurspegla fjölbreytt listræn form og hafa í senn skírskotun til sögunnar og samtímans.

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur

Umsækjendur skulu senda verkefnalýsingu til Menningarráðs Noregs (Norsk Kulturråd) með upplýsingum um markmið verkefnisins ásamt verkefnis-, framkvæmdar-, fjárhags- og fjármögnunaráætlun. Staðlað umsóknareyðublað er ekki fyrir hendi en umsóknir má senda rafrænt til post@kulturrad.no eða til Norsk Kulturråd, Postboks 8052 Dep, NO-0031 Oslo.

Allar umsóknir sem berast ráðinu fyrir febrúarlok ár hvert verða metnar í mars. Ef framlagið hefur ekki verið fullnýtt eftir aðalúthlutun í mars munu löndin tvö meta umsóknir að nýju að hausti. Að verkefni loknu skal skýrslu skilað til Menningarráðs Noregs í samræmi við þær reglur sem gilda fyrir ríksisstyrkþega.

Athugið. Umsóknir skulu vera á norsku, dönsku, sænsku eða ensku.

Að jafnaði er áhugamannahópum svo sem kórum og hljómsveitum ekki veittur ferðastyrkur. Ekki er greiddur heildarkostnaður verkefna.

Ef þörf er á frekari upplýsingum má hafa samband við Menningarráð Noregs (Norsk Kulturråd), s. 0047 21 04 58 00 eða post@kulturrad.no


Del på nettet   |   print