Málþing um Henrik Wergeland í Norræna húsinu

Í ár er því fagnað í Noregi að tvö hundruð ár eru liðin frá fæðingu skáldsins Henriks Wergeland (1808 - 1845). Henrik sem var uppi á sama tíma og Jónas Hallgrímsson (1807 - 1845), hefur framar öðrum orðið táknmynd hins norska þjóðfrelsis og þjóðaranda.
Í tilefni tveggja alda afmælis Henriks verður haldið málþing á vegum Norska sendiráðsins í Norræna húsinu fimmtudaginn 11. september kl. 17.00.
Dagne Groven Myhren prófessor í bókmenntum og Wergeland-sérfræðingur við Oslóarháskóla flytur erindið "Eventyrlig botanikk hos Henrik Wergeland".
Kristján Jóhann Jónson dósent í íslensku við Menntavísindasvið Háskóla Íslands flytur erindið "Náttúrusýn í ljóðum Jónasar Hallgrímssonar og Gríms Thomsen".
Fundarstjóri er Bergsveinn Birgisson lektor við Björgvinarháskóla. Bergsveinn birti grein um Henrik Wergeland í Lesbók Morgunblaðsins 17. maí sl.
Föstudaginn 12. september ræðir Dagne um Henrik Wergeland við námsmenn í norsku við Háskóla Íslands en nýr sendikennari er Tiril Myklebost.