A | A | A
Óperuhúsið í OslóÓperuhúsið í Osló

Snøhetta-sýning á Kjarvalsstöðum

Snøhetta - arkitektúr, landslagshönnun, innanhúshönnun - á Kjarvalsstöðum frá 14. janúar til 4. mars 2012.

Sýningin Snøhetta - arkitektúr, landslagshönnun, innanhúshönnun - var opnuð á Kjarvalsstöðum laugardaginn 14. janúar 2012.

Á 20 ára afmæli arkitektastofunnar í 2009 var efnt til stórrar yfirlitssýningar í Byggingarlistadeildinni í Listasafni Noregs í Oslo og það er úrval verka frá þeirri sýningu sem er til sýnis á Kjarvalsstöðum frá 14. janúar til 4. mars. (http://listasafnreykjavikur.is/desktopdefault.aspx/tabid-2182/3369_read-1840/date-1714/)

Heimasíða Snøhetta: http://www.snoarc.no/#/main/

Sýningarstjóri er Eva Madshus, seniorkurator við Listasafn Noregs - Arkitektúr (http://www.nasjonalmuseet.no/no/museumsbygninger/nasjonalmuseet__arkitektur/om_nasjonalmuseet__arkitektur/)

Sunnudaginn 26. febrúar kl. 15.00 segir fiðlusmiðurinn Hans Jóhannsson frá aðkomu sinni að Snøhetta en hann tók þátt í samstarfsverkefni með listamanninum Ólafi Elíassyni og arkitektinum Andreas Eggertsen hjá Snøhetta vegna Serpentine skálans í Lundunum árið 2007.

Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Eva Madshus sýningarstjóri frá byggingarlistardeild Listasafns Noregs, Tarald Lundvall arkitekt og einn eigandi Snøhetta og Silje Arnekleiv sendiráðsritari sem opnaði sýninguna:

Við opnun sýningar á Kjarvalsstöðum. 
Foto: Sendiráðið/PRL.Við opnun sýningar á Kjarvalsstöðum. Foto: Sendiráðið/PRL

Del på nettet   |   print