... voru til sýnis í bryggjusal Edinborgarhússins á Ísafirði 4. - 27. júní 2010. Konstruksjoner er farandsýning í eigu Norska utanríkisráðuneytisins og á sýningunni eru verk eftir 17 listiðnaðarmenn: Anne-Gry Løland, Anne Lene Løvhaug, Aslaug Juliussen, Astrid Løvaas og Kirsten Wagle, Erlend H. Leirdal, Franz Schmidt, Håvard Larsen, Inger Johanne Rasmussen, Ingrid Larssen, Inger Blix Kvammen, Kristin Sæterdal, Lars Sture, Lillian Dahle, Liv Blåvarp, Marianne Moe og Marit Helen Akslen.
16. júlí - 31. ágúst og 15. september - 17. október verður Konstruksjoner sýnd í Rúmeníu.
Frekari upplýsingar um þessa listiðnaðarmenn má finna á heimasíðu "Norske kunsthåndverkere" (nafn listamannsins + "Søk").
Á opnunardegi sýningar 4. júní bauð sendiherra Noregs Margit F. Tveiten til móttöku í tilefni af ræðismannaskiptum á Ísafirði. Nýr kjörræðismaður Noregs er Birna Lárusdóttir en hún tekur við af Sverri Hestnes.