Kaldar strendur- heitir straumar (Kalde kyster - varme strømmer) er nafn á samsýningu 12 listamanna frá Íslandi og Noregi sem verður opnuð í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 17. janúar 2009.
Sýningunni sem hóf ferðalag sitt í Galleri Apotheket í Stokmarknes í Noregi 12. september sl. og síðan sett upp í Galleri Hildreland i Bø og Harstad Kunstforening, lýkur 8. febrúar. Sýningin er opin daglega frá kl. 14 - 18 og um helgar frá kl. 14 - 16 .
Listamennirnir sem sýna eru: Agnieszka Sosnowska, Aina Grib, Ingrid Larssen, Ingunn Reinsnes, Íris Lind Sævarsdóttir, Kristín Scheving, Myriam Borst, Oili Puolitaival, Ove Aalo, Ólöf Björk Bragadóttir, Svandís Egilsdóttir og Siv Johansen.
Þessi sýning er einn af þeim mörgu viðburðum sem er afrakstur fimm ára mikilvægs menningarsamstarfs Vesterålen og Austurlands.
Korsettkvinne, eitt verkanna á sýningunni:
