Dato:
30 november 2008 - 06 desember 2008
Kveikt á jólatrjám frá vinabæjum í Noregi
SUNNUDAGINN 30. NÓVEMBER 2008:
Austurvelli, Reykjavík: Allt frá árinu 1951 hafa Oslóarbúar fært Reykvikingum jólatré og í ár var það Knut Even Lindsjørn, formaður menningar- og menntamálanefndar Oslóarborgar sem afhenti tréð og norsk-íslenski og 5 1/2 árs gamli Matthías Schou Matthíasson sem tendraði ljósin á því. Margit Tveiten, sendiherra Noregs á Íslandi, flutti stutt ávarp á íslensku.
LAUGARDAGINN 6. DESEMBER 2008:
Garðatorgi, Garðabæ kl. 16.00: Kveikt á jólatrénu frá vinabænum Asker. Margit Tveiten, sendiherra Noregs á Íslandi afhendir tréð fyrir hönd Askerbúa.
Reykjanesbæ kl. 18.00: Kveikt á jólatrénu frá vinabænum Kristiansand. Thomas Lid Ball, sendiráðsritari Norska sendiráðsins afhendir tréð fyrir hönd Kristiansandbúa.