A | A | A
Norræna húsið
Foto: Norska sendiráðiðNorræna húsið. Foto: Norska sendiráðið

Geir Henning Braaten og Ole Bøhn í Norræna húsinu 10. júní

Píanóleikarinn Geir Henning Braaten og fiðluleikarinn Ole Bøhn eru þátttakendur á tónlistarhátíðinni "Suður mætir Norðri" sem haldin er í Norræna húsinu 10. - 12. júní. Fimmtudagskvöldið 10. júní kl. 20.00 leika þeir verk eftir Leos Janacék og Edvard Grieg. Aðrir sem troða upp þetta kvöld eru Íslendingarnir Helga Rós Indriðadóttir, sópran, og Guðrún Dalía Salómonsdóttir, píanó, og frá Færeyjum Agnar Lamhauge, kontrabassi, og Jóhannes Andreassen, píanó.

Nánar um "Suður mætir Norðri" á heimasíðu Norræna hússins.  


Del på nettet   |   print