Norsku jazzistarnir Sidsel Endresen, f. 1952 (söngur), Nils Petter Molvær, f. 1960 (trompet), Eivind Aarset, f. 1961 (gítar) og Håkon Kornstad, f. 1977 (saxófónn) ásamt dönsku Marilyn Mazur, f. 1955 (slagverk) komu fram á Upplifun í hljóði - Tvöföldum jazztónleikum í tilefni 20 ára afmælis Jazzhátíðar Reykjavíkur og 40 ára afmælis Listahátíðar í Reykjavík í Óperunni föstudaginn 14. maí.
Tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins Vernharður Linnet gaf tónleikunum fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum í umsögn sinni sem bar fyrirsögnina "Magnþrunginn galdur tónanna".