A | A | A
Borgarleikhús
Foto: Norska sendiráðiðBorgarleikhús. Foto: Norska sendiráðið

"Endalaus" - nýtt dansverk eftir norðmanninn Alan Lucien Øyen - 2 sýningar eftir

Endalaus
Fallegt og tilfinningaríkt verk eftir verðlaunadanshöfund

Aðeins tvær sýningar eftir - sunnudaginn 28. febrúar og sunnudaginn 7. mars.

Þann 4. febrúar frumsýnti Íslenski dansflokkurinn nýtt verk eftir Alan Lucien Öyen, ungan norskan danshöfund sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Alan hefur getið sér gott orð fyrir falleg, tilfinningarík og ljóðræn verk með djúpri innri merkingu.   

Alan notar talað orð og myndband í dansverkinu til að skapa sérstakan söguþráð í anda heimildarmyndar. Okkur eru birt brot úr hugsunum, endurminningar um horfna ástvini. 

Hvað hverfur og hvað situr eftir í minningunni þegar samband tveggja einstaklinga rofnar.  ”Þegar þú og ég erum ekki lengur við.

Hver saga hefur jafn margar hliðar og þátttakendurnir. ”Við færum okkur nokkra metra til vinstri og hlutirnir horfa öðruvísi við ”

 

Tónlistin í verkinu er eftir Ólaf Arnalds sem hefur þrátt fyrir ungan aldur selt þúsundir hljómplatna og fyllt tónleikahallir víða um heim, þar á meðal Barbican Hall í London. Tónlist Ólafs færir mann í aðrar hæðir með viðkvæmum, rómantískum og sinfónískum tónsmíðum.  Ólafur byggir brú á milli klassískrar tónlistar og pop tónlistar þar sem hann blandar saman píanói og strengjahjóðfærum við rafræn hljóð og trommutakta.

 

Sýnt á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsi: 4/2  7/2  14/2  21/2  28/2  og 7/3

 

Danshöfundurinn Alan Lucien Öyen (f. 1978) er norðmaður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Alan og fyrirtæki hans Winterguests (www.winterguests.com) fengu nýlega styrk frá Norwegian Arts Council upp á 5,38 milj norskar krónur (117 milj ísl). Þetta er í fyrsta skipti sem dans og leikhússtyrkurinn eru sett saman í einn pott til að styrkja einn einstaking/fyrirtæki til fjölda ára (4 ára styrkur sem hann fær).

Linkur að myndbandi sem var tekið á æfingum – sýnir fegurðina í verkinu: http://www.youtube.com/watch?v=f0u4jp1WitI

(Texti: Íd/JP)    


Del på nettet   |   print