A | A | A
Nov
08
Nov
-30
Dato:  08 november 2008 - 30 november 2008

DUODU í Norræna húsinu

Laugardaginn 8. nóvember kl. 16.00 verður opnuð sýning í Norræna húsinu á sérhönnuðum prjónafatnaði frá norska hönnununarfyrirtækinu DUODU í Þrándheimi í Noregi
Hönnuðurnir sem reka fyrirtækið, Rita Nylander og Anne Grut Sörum hafa unnið saman síðan 1997 og haldið fjölda sýninga í Noregi, Bretlandi og Bandaríkjunum og hefur hönnun þeirra vakið mikla athygli.

Í sambandi við sýninguna mun Halldór Gíslason arkitekt og deildarforseti hönnunardeildar Kunsthögskolen i Oslo halda fyrirlestur um norska hönnun kl. 15.00 áður en sýning DUODU verður opnuð í sýningarsal í kjallara hússins. 

Sýningin er unnin í samvinnu við Norska sendiráðið í Reykjavík.

(Fréttatilk. frá Norræna húsinu)


Del på nettet   |   print