Páll Marvin Jónsson hefur verið sæmdur hinni Konunglegu riddaraorðu sem Haraldur Noregskonungur veitir en Páll Marvin hefur verið kjörræðismaður Noregs í Vestmannaeyjum síðustu tíu ár. Það var sendiherra Noregs á Íslandi Dag Wernø Holter sem veitti Páli Marvin orðuna og fór athöfnin fram í Náttúru- og fiskasafninu laugardaginn 5. nóvember.
Meðal gesta voru allir ræðismenn Noregs á Íslandi og makar:
Norsku sendiherrahjónin, kjærræðismenn Noregs og makar. Foto: PM